13maí

Nýtt blogg

Jæja, ný síða komin, búin að fá ógeð á bilunum og kjaftæði hérna inni
Nýja síðan er hérna
13. maí 2007 klukkan 23:29
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
06apríl

Latasti bloggari ever

Já ég veit, ég veit, I suck. Ég nenni bara svo sjaldan að skrifa eitthvað hingað inn, svo þegar ég loksins sest fyrir framan tölvuna til að skrifa eitthvað smávegis, bara svona til að láta vita að ég sé aktúelt á lífi, þá dettur mér nákvæmlega ekki neitt í hug til að skrifa.
En nú er ég stödd á Akureyri hjá elskulegum föður mínum. Við Kristófer komum með flugi á miðvikudagskvöldið. Flugið gekk rosalega vel og Kristófer fannst bara gaman í þessum fljúgandi furðuhlut :) Við kíktum svo austur á Húsavík í gær. Kristófer var ótrúlega fyndinn, hann sumsé svaf mest alla leiðina austur og svo þegar við vorum að leggja á bílastæðinu hjá mömmu og Jóa, vaknar hann og heyrist úr aftursætinu "Jæja" við pabbi héldum bæði að Kristófer væri ennþá sofandi þannig að þetta kom okkur svona svolítið á óvart :) en þetta var eiginlega bara fyndið. Þegar við vorum búin að vera hjá mömmu í smá stund tökum við eftir því að Kristófer er svolítið heitur, en skrifuðum það bara á það að það hefði verið heitt í bílnum og hann hefði verið bæði í prjónapeysu og með húfu. Svo stuttu síðar þá er ákveðið að mæla drenginn og er hann þá ekki bara kominn með rúmlega 38° hita :( Við stoppuðum samt í smá stund í viðbót og kíktum svo á ömmu og afa í Ásgarði og þá sé ég bara hvernig strákurinn verður veikari og veikari, vildi bara kúra hjá mér og svona, sem hann gerir annars ekki. Þegar við svo komum aftur inn á Akureyri þá var hann kominn með 40° hita, greyið litla :(
Ég fór svo með hann til læknis í morgun, þá var hann aftur kominn með eyrnabólgu og er núna kominn á penicillin, þannig að hann fer nú vonandi að skána.
Planið var í dag að fara austur á Þórshöfn í afmælisveislu hjá Heimi Ara litla bróður mínum, en hann varð einmitt 5 ára núna um daginn. En við fórum ekki eins og gefur að skilja. En pabbi og Hilmar fóru þannig að við erum bara búin að vera hérna tvö og hafa það ferlega kósý saman.

Ég var inni í stofu áðan að spjalla í símann þegar ég heyri alltaf annað slagið eitthvað furðulegt hljóð úti, eins og verið væri að pína kött eða eitthvað, jæja ég rölti inn í herbergi og kíki út um gluggann og eiginlega sprakk úr hlátri... ok, ég ætla að reyna að lýsa þessu fyrir ykkur lesendur góðir... ímyndið ykkur splunkunýtt íbúðarhverfi, það eru hálfbyggð hús hér inn á milli gullfallegra nýrra húsa og svona, á sumum þessum hálfköruðu lóðum eru gámar og drasl sem óhjákvæmilega fylgir húsbyggingum. Uppi á einum gámnum stendur lítil stelpa, á að giska 7 ára. Hún dansar fram og til baka eftir gámnum, greinilega í mikilum fílíng og með miklum tilþrifum syngur hún hástöfum, Ég les í lófa þínum. Eurovision lagið hans Eiríks Haukssonar, með alls konar textabrengli og öllu því sem tilheyrir showi hjá 7 ára barni. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði, ég var alveg að springa úr hlátri en vildi samt ekki hlægja upphátt, glugginn opinn og svona og stelpan bara svona eina 10 metra í burtu frá mér þannig að hún hefði alveg pottþétt heyrt í mér. En mér tókst að halda niðri í mér hlátrinum, þó erfitt hafi verið.

Jæja, planið er að fara austur á Húsavík á morgun og vera þar þar til á mánudaginn, þá ætlum við mæðgin að koma aftur á eyrina og fljúga heim. Vona bara að Kristófer verði skárri í eyrunum, þannig að flugið verði ekki óþægilegt fyrir hann.

Jæja ég bið að heilsa öllum og óska ykkur gleðilegra páska.
06. apríl 2007 klukkan 22:46
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
15mars

Hversu marga..............?

Skipt um peru eftir stjörnumerkjum

Lesið þetta og hugsið um fólkið í þessum merkjum um leið.

Hvað þarf margar hrúta til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en það þarf margar perur.

Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu?
Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.

Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu?
Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem kemur inní herbergið.

Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir atburðinn.

Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu?
Ljón skipta ekki um perur, í mesta lagi heldur hann henni á meðan heimurinn snýst í kringum hann.

Hversu margar meyjur þarf til að skipta um ljósaperu?
Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að ákveða hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa húsið á meðan hinir skipta um peruna.

Hversu margar vogir þarf til að skipta um ljósaperu?
Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið af pælingum og áhyggjum yfir því.

Hversu marga sporðdreka þarf til að skipta um ljósaperu?
Og hver veit það? Afhverju viljiði vita það? Eruði kannski lögreglumenn?

Hversu marga bogamenn þarf til að skipta um ljósaperu?
Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið áhyggjur af einhverri ljósaperu???

Hversu margar steingeitar þarf til að skipta um ljósaperu?
Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.

Hversu marga vatnsbera þarf til að skipta um ljósaperu?
Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini sem getur gefið heiminum ljós aftur.

Hversu margar fiska þarf til að skipta um ljósaperu?
Afhverju, fór ljósið
15. mars 2007 klukkan 16:47
Elísa Rún Heimisdóttir
2 athugasemdir
05mars

Textamisheyrn

Hæhæ, ég veit að þetta er fáránlega langt, en að sama skapi er þetta líka alveg fáránlega fyndið... so enjoy!!!


"Purple Haze", eftir Jimi Hendrix
Vitlaus texti:
" ´scuse me while I kiss this guy"
Réttur texti:
" ´scuse me while I kiss the sky"

"Fyrst ég annars hjartahræri", eftir Bellman
Vitlaus texti:
"þarma-steiktar gæsir gott að fá!
Réttur texti:
"Þar mun steiktar gæsir gott að fá"

"Hopelessly devoted to you", Olivia í Grease
Vitlaus texti:
"Bone fine bone .. to you ...
Réttur texti:
"Hopelessly devoted .. to you ..."

"Ég sé um hestinn", Skriðjöklarnir
Vitlaus texti:
"Við munum ríða, en sú blíða framhjá hungangsflugunni!
Réttur texti:
"Við munum ríða, en sú blíða framhjá hungangshlöðunni"

"Freak out", Chic
Vitlaus texti:
"Aaaaaaafrica!!
Réttur texti:
"Ahhhh Freak out!!"

"Allt á hreinu", Land og synir
Vitlaus texti:
"Svo ríð ég þessum er ég vil ..
Réttur texti:
"Svo sný ég þessu mér í vil .."

"The Ballad Of Chasey Lane", Blood Hound Gang
Vitlaus texti:
"Now show them teeth"
Réttur texti:
"Now show them titties"

"Sextán", Síðan Skein Sól
Vitlaus texti:
"Sextán .. og ég skalla þig í bíó .. vinan."
Réttur texti:
"Sextán .. og þú skalt sjá mig í bíó .. vinan."

"Gleðibankinn", ICY flokkurinn
Vitlaus texti:
"Þú leggur ekki inn í gleðibankann tóma krús"
Réttur texti:
"Þú leggur ekki inn í gleðibankann tóman blús"

"Blue",
Vitlaus texti:
"I´m blue if I was green I would die, if I was green I would die"
Réttur texti:
"I´m blue , da ba di ba, da ba di ba, da ba di ba ......"

"Ég einskis barn er",
Vitlaus texti:
"Ég engist af þér"
Réttur texti:
"Ég einskis barn er"

"Final countdown", Europe
Vitlaus texti:
"We´re heading for penis"
Réttur texti:
"We´re heading for venus"

"All that she wants", Ace of Base
Vitlaus texti:
"Oh meksí bucks is a little baby"
Réttur texti:
"All that she wants, is another baby"

"Stuck on you", Lionel Ritchie
Vitlaus texti:
"Step on you .. I´ve gotta feeling down deep in my toes that I just can´t loose"
Réttur texti:
"Stuck on you .. I´ve gotta feeling down deep in my soul that i just can´t loose"

"WIld world", Cat Stevens
Vitlaus texti:
"If you wanna leave, take a cab"
Réttur texti:
"If you wanna leave, take good care"

"If you had my love", Jennifer Lopz
Vitlaus texti:
"And I refuse to let you pay me for my food"
Réttur texti:
"And I refuse to let you play me for a fool."

"Most girls", Pink
Vitlaus texti:
"Most girls want a man with a bling bling"
Réttur texti:
"Most girls want a man who sing sing"

"Á miðri leið", SSSól
Vitlaus texti:
"Og síðan hittumst við aftur á miðvikudag"
Réttur texti:
"Og síðan hittumst við aftur á miðri leið"

"Dísa", SSSól
Vitlaus texti:
"Komdu aftur til mín kisa (kisa mín) komdu með í kenwoochef"
Réttur texti:
"Komdu aftur til mín Dísa (Dísa mín) komdu með í kenwoochef"

"Jackie",
Vitlaus texti:
"When you´re touching my hole with a candlelight"
Réttur texti:
"When you´re touching my soul with a candlelight"

"Aðfangadagskvöld", Helga Möller
Vitlaus texti:
"Það var aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld, og eldvarnarhátíðin mest!"
Réttur texti:
"Það var aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld, og ungbarnahátíðin mest!"

"Orginal", Sálin
Vitlaus texti:
"Það er ekki nóg, að hafa samfarir!"
Réttur texti:
"Það er ekki nóg, að hafa sannanir."

"Innocent", Britney Spears
Vitlaus texti:
"I´m doctor Andersen"
Réttur texti:
"I´m not that innocent"

"Pumping on your stereo", Supergrass
Vitlaus texti:
"Can you hear us jumping on your stereo?"
Réttur texti:
"Can you hear us pumping on your stereo?"

"Where it´s at", Beck
Vitlaus texti:
"Wait a sec .."
Réttur texti:
"Where it´s at .."

"Stína var lítil", Lummurnar
Vitlaus texti:
"...samt gat hún Stína, söngvana sína, sungið með hárið laust"
Réttur texti:
"...samt gat hún Stína, söngvana sína, sungið með hárri raust."

"Út á lífið",
Vitlaus texti:
"Út á lífið með vörtusvíni"
Réttur texti:
"Út á lífið, burt ég svífi..."

"Komdu með", HLH og Sigga B.
Vitlaus texti:
"Ég sá hana í horninu á Mánabar, hún minnti mig á Brennivín"
Réttur texti:
"Ég sá hana í horninu á Mánabar, hún minnti mig á Brendu Lee"

"Waterloo", ABBA
Vitlaus texti:
"Honeyglue!"
Réttur texti:
"Waterloo!"

"If you don´t know me by now", Simply red
Vitlaus texti:
"Cause we only have black children When we argue fuzz and fight
Réttur texti:
"Cause we only act like children When we argue fuzz and fight..."

"Ég þekki þig", Sálin
Vitlaus texti:
"Ég þekki þig, og þína langömmu.."
Réttur texti:
"Ég þekki þig, og þínar langanir..."

"Fram fram fylking"
Vitlaus texti:
"...forðum okkur hættu frá því ræningja-hross vilja ráðast á"
Réttur texti:
"...forðum okkur hættu frá því ræningjar oss vilja ráðast á"

"Alelda", Ný Dönsk
Vitlaus texti:
"Alelda ... sólbrenndur bjáni ...."
Réttur texti:
"Alelda .. sáldrandi prjáli..."

Önnur úr sama lagi .. enda auðvelt að misheyra "sáldrandi prjáli" (hver samdi þetta??)
"Alelda", Ný Dönsk
Vitlaus texti:
"Að elda .. sjálfan sig bjáni""
Réttur texti:
"Alelda .. sáldrandi prjáli..."

"Kirsuber", Ný Dönsk
Vitlaus texti:
"Hvít, hvít Fljótshlíð ...."
Réttur texti:
"Hvít, hvít brjóstin..."

"Fram í heiðanna ró"
Vitlaus texti:
"Fram í heiðanna ró fann ég bólstraðan stól ...."
Réttur texti:
"Fram í heiðanna ró, fann ég bólstað og bjó..."

"All that she wants", Ace of Base
Vitlaus texti:
"Olajuwon, is a little baby...."
Réttur texti:
"All that she wants, is another baby..."

"The Night Comes Down", Queen
Vitlaus texti:
"And I get afraid, of losing my weight ...."
Réttur texti:
"And I get afraid, of losing my way..."

"Þjóðsöngurinn",
Vitlaus texti:
"... sem tilbiður guð, Sigurgeir ...."
Réttur texti:
"... sem tilbiður guð sinn og deyr...."

"Burning down the house", Talking heads
Vitlaus texti:
"Watch out you Americans what so ever ...."
Réttur texti:
" Watch out. You might get what you´re after..."

"Tsunami", Manic street preachers
Vitlaus texti:
"C´est la vie, c´est la vie qu´ai marché over here"
Réttur texti:
" Tsunami,tsunami came washing over me"

"Skólaball", Björgvin Halldórsson
Vitlaus texti:
"Ég missteig mig og til hennar gekk .."
"Ég hristi mig og til hennar gekk .."
Réttur texti:
"Ég missti mig og til hennar gekk..."

Vitlaus texti:
".. og upp að ljósastaurnum hallaði ofurmennið ég .."
Réttur texti:
".. og upp að ljósastaurnum hallaði og um ennið hélt.."

"One way ticket",
Vitlaus texti:
"One way chicken to the moon .."
"One way ticket to the moon..."
Réttur texti:
"One way ticket to the blues..."

"Smoke on the water", Deep Purple
Vitlaus texti:
"Small comes the water .."
"Slow comes the water .."
"Slow motion Walter, a fire engine guy .."

Réttur texti:
"Smoke on the water, a fire in the sky..."

"Vöðvastæltur", Land og synir
Vitlaus texti:
"Blómin ráðast á mig .."
"Bróðir minn að slá mig .."
Réttur texti:
"Lóðin hlaðast á mig..."

"Faðir vor", Bæn
Vitlaus texti:
"Það er vor, þú sem ert á himnum
helgist þitt nafn, tilkomi þitt ríki,
veði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.
Eigi leið þú ost í frysti, heldur frelsa ost frá illu ...."
Réttur texti:
Það ættu nú allir að kunna hann ....

"Final Countdown", Europe
Vitlaus texti:
"It´s a fire downtown .."
Réttur texti:
"It´s the final countdown..."

"Torn", Natalie Imbruglia
Vitlaus texti:
"..I´m a leatherface .."
"..I´m a little late .."
Réttur texti:
"..I´m all out of faith..."

"Drinking in LA",
Vitlaus texti:
"..what the hell am I , doing drinking in a lake .."
Réttur texti:
"..what the hell am I doing drnking in LA..."

"Stayin alive", Bee Gees
Vitlaus texti:
"..stay in the light .."
Réttur texti:
"..stayin alive..."

"Stjáni saxafónn", Pjetur og Úlvarnir
Vitlaus texti:
"..hann er æði æði æði, Stjáni sexýfúl .."
Réttur texti:
"..hann er æði æði æði, Stjáni saxafónn..."

"Auður", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..engin nær í eftirlaun, eftir klukkan þrjú .."
Réttur texti:
"..enginn nær í rekkjunaut, eftir klukkan þrjú..."

"Krókurinn", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..komdu nú með gamla kústinn útá kantinn .."
Réttur texti:
"..komdu nú með gamla guðstein ú á kantinn.."

"Ábyggilega", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..hún á helling af sykri og seðlum .."
Réttur texti:
"..hún á helling af silfri og seðlum..."

"Út úr sýn", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..fullnægingu fær með því .."
Réttur texti:
"..friðþægingu fær með því.."

"Netfanginn", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..við skiptumst á flæmingjamyndum .."
Réttur texti:
"..við skiptumst á fermingarmyndum..."

"Englar", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..við verðum englar eða álfar bæði tvö .."
Réttur texti:
"..við verðum englar eða árar bæði tvö.."

"Kanínan", Sálin Hans Jóns Míns
Vitlaus texti:
"..Feita Nína .. na na na na na nanna"
"..Heybanína .. na na na na na nanna"
"..Hauka Nína .. na na na na na nanna"
"..Auka lína .. na na na na na nanna"
Réttur texti:
"..Hei Kanína ..nanananananana..."
Þeir Sálarmenn heyra ennþá beðið um lagið "Feita Nína.." á böllum,
og einnig má heyra beðið um "Hauka Nína" í óskalagaþáttum.

"Þrisvar í viku", Bítlavinafélagið
Vitlaus texti:
"..fór í bæinn í dag og fékk sér varadekk .."
"..fór í bæinn í dag og fékk sér vara leg .."
"..fór í bæinn í dag og fékk sér varalit .."
Réttur texti:
"..fór í bæinn í dag og fékk sér varanlegt .."
Útskýring: Enska þýðingin á orðinu "varanlegt" er "permanent"
Hann fór semsagt í bæinn og fékk sér permanent ...
Skemmtilegur húmor sem er búinn að rugla marga í ríminu í gegnum árin.

"Pump up the volume", M.A.R.R.S
Vitlaus texti:
Satelite disco
Réttur texti:
Brothers and sisters..

"Accidents will Happen", Elvis Costello
Vitlaus texti:
Excellence will happen
Réttur texti:
Accidents will happen

"Bark at the Moon", með Ozzy Osbourne
Vitlaus texti:
Park at the mall
Réttur texti:
Bark at the moon

"Best Friend´s Girl", The Cars
Vitlaus texti:
Best French girlfriend
Réttur texti:
Best Friend´s Girl

"Brilliant Disguise", Bruce Springsteen
Vitlaus texti:
Is that me baby or just a Prince in disguise
Réttur texti:
Is that me baby or just a brilliant disguise

"Billy Jean", með Michael Jackson
Vitlaus texti:
But the chair is not my size
eða
Blue Jeans are not my size.
Réttur texti:
But the kid is not my son

"Boys of Summer", með Don Henley
Vitlaus texti:
I can see you, your breasts keep shining in the sun...
you got your hair pulled back, sunglasses on baby
Réttur texti:
I can see you, your brown skin shining in the sun
you got your hair pulled back, sunglasses on baby

"California Uber Alles" með the Dead Kennedys
Vitlaus texti:
I order smiles and never frowns
Réttur texti:
My aura smiles and never frowns

"California Uber Alles" með the Dead Kennedys
Vitlaus texti:
You´re a dog in the master race
Always wear a happy face
Close your eyes and listen dear
The big ol´ white horse is here
´Get up on it´s back,´ you say
Mellow out or you will pay
Réttur texti:
You will jog for the master race
And always wear the happy face
Close your eyes, can´t happen here
Big Bro on white horse is near
The hippies won´t come back you say
Mellow out of you will pay

"Careless Whispers", með Wham!
Vitlaus texti:
Filthy feet have gotten on the river
Réttur texti:
Guilty feet have got no rhythm

"Centerfold", með J. Geils Band
Vitlaus texti:
My anus is the center hole
Réttur texti:
My angel is the centrefold

"Come On Eileen", með Dexys Midnight Runners
Vitlaus texti:
Come on Irene
Réttur texti:
Come On Eileen

"Don´t You Want Me?", Human League
Vitlaus texti:
Spread your legs and find
You think you´ve changed you´re mind
Réttur texti:
It´s much too late to find
You think you´ve changed you´re mind

"Don´t Stop Believin´", Journey
Vitlaus texti:
Smell of wine and cheese perfume
Réttur texti:
Smell of wine and cheap perfume

"Down Under", með Men At Work
Vitlaus texti:
You´d better run, you better take a bow
eða
You better run, you better say shalom
Réttur texti:
You´d better run, you better take cover

"Down Under", með Men At Work
Vitlaus texti:
Where women glow and men chunder
Réttur texti:
Where we grow cold and much younger

"Escapade", með Janet Jackson
Vitlaus texti:
Ice-capades... we´ll have a good time
Réttur texti:
Escapade... we´ll have a good time

"Every Breath You Take", með The Police
Vitlaus texti:
Happy birthday cake...
Réttur texti:
Every breath you take

"Eyes Without a Face", með Billy Idol
Vitlaus texti:
How´s about a date?
eða
I´ll supply the fish.
Réttur texti:
Eyes without a face

"Flashdance", með Irene Cara
Vitlaus texti:
Take your pants off and make it happen
Réttur texti:
Take your passion and make it happen

"Fortress Around Your Heart", Sting
Vitlaus texti:
And let me build a bridge, for I cannot build a castle
Réttur texti:
And let me build a bridge, for I cannot fill the chasm

"Ghostbusters", með Ray Parker Jr.
Vitlaus texti:
Who ya gonna call? Those Bastards!
Réttur texti:
Who ya gonna call? Ghostbusters!

"Girl Is Mine", með Paul McCartney & Michael Jackson
Vitlaus texti:
Every night she washes my in-betweens....
Réttur texti:
Every night she walks right into my dreams...

"Head Games", með Foreigner
Vitlaus texti:
Hat Games
Réttur texti:
Head Games

"The Heart of Rock and Roll", með Huey Lewis and the News
Vitlaus texti:
The heart of rock and roll is in Cleveland
Réttur texti:
The heart of rock and roll is still beatin´

"Hot Blooded", með Foreigner
Vitlaus texti:
Hot & bloody, check it and see
Réttur texti:
Hot blooded, check it and see

"I Got A New Attitude", með Patti Labelle
Vitlaus texti:
I got a new pair of shoes...
Réttur texti:
I got a new attitude

"I´ll Tumble 4 Ya", með Culture Club
Vitlaus texti:
I´ll tell Movia
Réttur texti:
I´ll tumble for ya

"I Take the Dice", með Duran Duran
Vitlaus texti:
Hold tight to Daddy´s brave lips
Réttur texti:
Hold tight to Daddy´s bracelet

"It´s My Life", með Talk Talk
Vitlaus texti:
It´s my life
Don´t you forget
It´s my life
It´s not for rent
Réttur texti:
It´s my life
Don´t you forget
It´s my life
It never ends

"Jump", með The Pointer Sisters
Vitlaus texti:
If you want to take my temperature tonight
Réttur texti:
If you want to taste my kisses in the night

"Karma Chameleon", með Culture Club
Vitlaus texti:
Come On, Wheel Me In.
Réttur texti:
Karma Chameleon.

"Kiss Is On Your List", Hall and Oates
Vitlaus texti:
Your kiss is on my lips
Réttur texti:
Your kiss is on my list

"Kiss Me Deadly", með Lita Ford
Vitlaus texti:
Come on pretty baby, kiss me daddy
Réttur texti:
Come on pretty baby, kiss me deadly

"Kyrie", með Mr. Mister
Vitlaus texti:
Carry a laser...
Réttur texti:
Kyrie eleison

"La Isla Bonita", með Madonna
Vitlaus texti:
Last night I dreamt of some dago
eða
Last night I dream of some bagel
Réttur texti:
Last night I dreamt of San Pedro

"Like a Hurricane", með The Mission
Vitlaus texti:
There´s cum in your eye
Réttur texti:
There´s calm in your eye

"Like A Surgeon", "Weird Al" Yankovic
Vitlaus texti:
Better give me all your gosners
eða
Better give me all your commerce
Réttur texti:
Better give me all your gauze, nurse

"Lucille", með Kenny Rogers
Vitlaus texti:
...with four hundred children
Réttur texti:
...with four hungry children

"Miss Again", með Phil Collins
Vitlaus texti:
I gotta piss again uh-huh
eða
I´ll take on Michigan
Réttur texti:
I think I missed again uh-huh

"Miss Free Love", með Hoodoo Gurus
Vitlaus texti:
Windscreen love of ´69
Réttur texti:
Miss free love of ´69

"Olivers Army", Elvis Costello
Vitlaus texti:
I was always here to stay
Réttur texti:
Olivers army is here to stay

"Our Lips Are Sealed", með The Go-Go´s /Fun Boy Three
Vitlaus texti:
Alex The Seal
eða
Islands of Seals
eða
Honest Cecile
eða
I love Cecile
eða
I´d like to see you
eða
Olives have feelings
Réttur texti:
Our Lips Are Sealed

"Over Kill", með Men At Work
Vitlaus texti:
...my heartbeat shows the fear,
ghosts appear and fade away
Réttur texti:
..my heartbeat shows the fear,
goes to sleep and fades away

"Push It", með Salt-N-Pepa
Vitlaus texti:
Aw Bullshit!
Réttur texti:
Push It

"Robert De Niro´s Waiting", Bananarama
Vitlaus texti:
Watching a film of a payphone wall
Réttur texti:
Watching a film or a face on the wall

"Refugee", með Tom Petty and the Heartbreakers
Vitlaus texti:
Don´t have a liver like a refugee
Réttur texti:
Don´t have to live like a refugee

"R-O-C-K In The USA", með John Cougar Mellencamp
Vitlaus texti:
I´m a Love Seeker in the USA - HEY!
Réttur texti:
R-O-C-K in the USA - HEY!

"Rock Me Amadeus", með Falco
Vitlaus texti:
Hot potatoes hot potatoes
Réttur texti:
Amadeus Amadeus

"Orinoco Flow", Enya
Vitlaus texti:
Save the whales, save the whales, save the whales
Réttur texti:
Sail away, sail away, sail away

"Save a Prayer", með Duran Duran
Vitlaus texti:
Say a prayer for meow..
Réttur texti:
Say a prayer for me now..

"She-bop", Cyndi Lauper
Vitlaus texti:
Do I wanna go out with a lying drunk?
Réttur texti:
Do I wanna go out with a lion´s roar?

"Soul Man", með the Blues Brothers
Vitlaus texti:
I was so mad
Réttur texti:
I´m a soul man

"Soundtrack to a Generation", Human League
Vitlaus texti:
The smell of dreams can only be this way
Réttur texti:
The smell of trees can only be this way

"Stand and Deliver", með Adam Ant
Vitlaus texti:
Stand on your liver, your money or your life
eða
Stand in the river, ...
Réttur texti:
Stand and deliver, your money or your life

"Suicidal Blonde", með INXS
Vitlaus texti:
You wanna make it, soup and salad bar
eða
You wanna make love, supersonic blonde
Réttur texti:
You wanna make her, suicide blonde

"Sweet Dreams (Are Made Of This)", með Eurythmics
Vitlaus texti:
Sweet dreams are made of these,
Who had a mind to disagree?
eða
Sweet dreams are made of cheese...
Réttur texti:
Sweet dreams are made of this,
Who am I to disagree?

"Terrible Lie", með Nine Inch Nails
Vitlaus texti:
Table wine
Réttur texti:
Terrible Lie

"These Dreams", með Heart
Vitlaus texti:
E-strings
Réttur texti:
These dreams

"Urgent", með Foreigner
Vitlaus texti:
Virgin!
Réttur texti:
Urgent!

"Voices Carry", með ´Til Tuesday
Vitlaus texti:
Hush hush. We are down town.
eða
Hush hush. Keep it down, clown
This is scary
eða
This is Kari
eða
Even downtown, voices carry
Réttur texti:
Hush Hush. Keep it down, down
Voices Carry

"Wake Me Up Before You Go-Go", með Wham!
Vitlaus texti:
Wake me up before you go-go,
´Cause I´m not standing on an oreo-o
Réttur texti:
Wake me up before you go-go,
´Cause I´m not planning on going solo

"We Are the World ", ýmsir flytjendur
Vitlaus texti:
There comes a time when we need a certain call
Réttur texti:
There comes a time when we heed a certain call

"We Don´t Have To Take Our Clothes Off", Jermaine Stewart
Vitlaus texti:
We don´t have to take the volvo... to have a good time...
Réttur texti:
We don´t have to take our clothes off... to have a good time...

"When the Goin´ Gets Tough", með Billy Ocean
Vitlaus texti:
Go and get stuffed
Réttur texti:
When the goin´ gets tough

"You Give Love A Bad Name", með Bon Jovi
Vitlaus texti:
Beauty In Love´s a bad name
or
You give love a Band-Aid"
Réttur texti:
You give love a bad name


05. mars 2007 klukkan 21:53
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
26febrúar

Hahahhaha

Þetta skilti hangir í undergroundinu í London og er auglýsing frá útfaraþjónustu!










Fruuuussss......





Þarf eitthvað að segja um þetta en bara hrein og tær sniiillllld!!!!













ATH!! Lesa vel það sem stendur á miðanum!!

26. febrúar 2007 klukkan 22:49
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
25febrúar

Veikindi

Stuð, stuð, stuð og aftur stuð.
Nú er Kristófer Daði lasinn og Steini að vinna þannig að við mæðginin erum bara að dúlla okkur hérna heima í rólegheitum, horfum á teiknimyndir og svona og höfum það gott.
Er búin að komast að því að syni mínum finnst óskaplega gaman að hafa eitthvað á höfðinu, sumsé eins og hatta. Á síðunni hans má sjá hann með nokkrar gerðir af "höttum" en nú situr hann hérna með stóra plastskál á höfðinu og spyr mig hvort hann sé ekki fínn. Alger rúsína.
Um síðustu helgi fórum við í matarboð hjá Ella og Dísu og horfðum á úrslitin í Eurovision hjá þeim, það var ótrúlega gaman. Við ætluðum að stinga af og fara á tónleika með Ljótu Hálfvitunum á Rósenberg en það var svo gaman að við slepptum því bara, hefði örugglega ekki verið jafn gaman að fara þangað eins og það var hjá okkur þetta kvöld. Við fengum ótrúlega góðan mat, eins og vaninn er í þessum matarboðum hjá þeim skötuhjúum, en við fengum heilsteikta gæs. Þetta var semsagt hin árlega gæslaveisla, sem kom í ljós um daginn að hefur reyndar bara verið haldin annað hvert ár, en hún átti samt upphaflega að vera árleg. Síðast var hún haldin þegar ég var ófrísk. Þannig að allir snæddu af gæsinni eins og þeir væru líka að borða fyrir veisluna sem aldrei var haldin í fyrra.
Ég er alltaf að vinna á Kvennadeild Landspítalans við Hringbraut og finnst það mjög skemmtileg vinna, en nú er Steini að skipta um vinnu. Hann er búinn að vera að vinna á 112 eins og flestir vita en nú er hann að fara að vinna sem deildarstjóri Byggt & Búið í Smáralindinni. Þar sem það er á dagvinnutíma voru góð ráð dýr og hvað átti að gera við barnið?... Engar áhyggjur, við erum búin að fá dagmömmu og byrjar hann í aðlögun hjá henni á morgun ef hann verður orðinn hress :) Við vonum það bara :)

Jæja, gott í bili
25. febrúar 2007 klukkan 12:56
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
13febrúar

Algeng mistök hjá strákunum

1. Kyssa konuna ekki nóg!
Góður og langur koss er stór hluti af forleiknum. Ef þú ert að flýta þér það mikið að þú gleymir að sinna kossahlutanum er líklegt að þú náir ekki að æsa hana nóg upp.

2. Blása inn í eyrað á konunni!
Það er greinilega einhver gróusaga í gangi um að konur elski að láta blása í eyrað á sér. Þetta er lygi. Tunga sem sleikir eyrnasnepilinn blíðlega er aftur á móti allt annað mál!

3. Eru órakaðir!
Við getum alveg viðurkennt að órakaðir menn geta verið sexý á götum úti. En prófaðu að nudda sandpappír á innanverð lærin eða á hökuna. Húðin mun sennilega flagna og ekki sérlega þægilegt.

4. Klemma brjóstin á konunni!
Við skulum fá það á hreint að konubrjóst eru ekki bolludeig sem á að hnoða, eða melóna sem þarf að þrýsta á til að athuga hvort hún sé orðin nógu þroskuð til að borða. Karlmenn! Farið gætilega með brjóstin á okkur og einbeitið ykkur frekar að geirvörtunum.

5. Bíta í geirvörturnar!
Þegar menn sleikja eða sjúga geirvörturnar er það yfirleitt yndislegt. En þegar varnarlausar geirvörturnar verða að naghring er það ekki svo yndislegt lengur.

6. Snúa uppá geirvörturnar!
Í guðanna bænum hættið að snúa uppá geirvörturnar á okkur eins og þið séuð að stilla útvarpið í bílnum. Geirvörturnar okkar eru ekki takkar.

7. Gleyma ákveðnum líkamshlutum!
Það finnast fleiri líkamshlutar á konum en brjóst og undirstell. T.d. axlir, háls, hryggur og rass.

8. Hjálpa konunni ekki úr fötunum!
Ekki bara liggja við hliðina á konunni með hendina niðri í nærbuxunum hennar. Ef að þú virkilega vilt tæla hana, hjálpaðu henni þá úr fötunum.

9. Eiga ekki smokka!
Maðurinn kemur með okkur heim. Og klæðir sig í smokk. Svoleiðis er það bara...

10. Ráðast á snípinn!
Gjörið svo vel að umgangast snípinn með virðingu. Ekki þrýsta, snúa eða sjúga hann. Reynið frekar að nudda gætilega í kringum snípinn.

11. Taka pásur!
Ef að þið takið pásu þýðir það stopp fyrir konur. Þá þurfa mennirnir að byrja frá byrjun. Ef að konan er byrjuð að hitna, haltu þá áfram. Þú getur líka farið þér hægt á meðan þú fullnægir henni. Það gefur bónus á endanum.

12. Klæða konuna úr fötunum í vitlausri röð!
Engin kona vill líta asnalega út. Og maður lítur líka asnalega út þegar neðri líkamshlutinn er nakinn en maður er ennþá klæddur í sokka og peysu/bol.

13. Ráðast á sköpin!
Neðri kroppur konunnar er meira en eitt gat. Taktu þér tíma áður en þú ræðst á það.

14. Nudda of harkalega!
Nudd getur alltaf skapað góða stemmingu. En skildu nuddaðferðina frá nuddaranum þínum eftir heima. Ef að þú gengur of harkalega til verks getur það dregið úr stemmningunni.

15. Vilja fá konuna of fljótt úr fötunum!
Ekki rífa hana úr fötunum. Það getur vel verið að Michael Douglas hafi sloppið vel frá því í erótískum spennumyndum sem að hann hefur leikið í. Taktu því rólega. Hún hefur jú lagt sig fram um að líta vel út fyrir þig. Hrósaðu henni fyrir fallegu undirfötin.

16. Fara fyrst úr buxunum!
Röðin ætti að vera: bolur, sokkar, og svo buxurnar. Aldrei öfugt! Það er ekkert eins ósexý og karlmaður sem stendur á hvítu tennissokkunum með "vininn" hangandi niður fyrir bolinn. Þetta atriði er ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu á!

17. Flýtir sér of mikið!
Gefðu henni tíma, ekki flýta þér eins og þú eigir lífið að leysa. Hún mun gefa þér merki um þegar hún vill að þú setjir allt á fullt.

18. Eru of harðhentir í rúminu!
Það fær henni til að líða eins og hún sé nýkomin úr tveggja vikna reiðtúr, án hnakks!

19. Koma of fljótt!
Þetta er mjög algengt. Margir karlmenn koma of fljótt, og þess vegna er gott að hafa B plan um hvernig þú getur fullnægt henni.

20. Koma of seint!
Þetta er nýtt! Þú ert enginn sexgúrú, bara af því að þú getur haldið út í tvo tíma án þess að "koma". Allt er þreytandi til lengdar.

21. Spyrja hana hvort að hún hafi "komið"!
Annað hvort tekur þú eftir því hvort að hún hafi fengið fullnægingu, annars "kom" hún sennilega ekki. Ekki spyrja svona heimskulega.

22. Allt of gætileg munnmök!
Þú ert ekki lítill kettlingur sem að lepur mjólkina í þig. Notaðu tunguna! Rúllaðu, víbraðu og gerðu bylgjur með tungunni á snípnum á henni.

23. Þrýsta höfði konunnar niður við munnmök!
Nei konum líkar alls ekki að láta þrýsta höfðinu á sér niður að getnaðarlim mannsins. Já, þetta er gert í klámmyndunum og nei þetta "fílum" við alls ekki í raunveruleikanum.

24. "Koma" í munn konunnar!
Sæði er á bragðið eins og saltvatn, blandað með eggjahvítu. Það eru ekki allar konur sem að líkar þetta bragð. Segðu til svo að hún nái að forða sér áður en þú "færð það" upp í hana.

25. Hreyfa sig órólega!
Þegar hún "tottar" hann á þér, liggðu kyrr. Hún mun sjá um allar nauðsynlegar hreyfingar.

26. Líkja eftir klámmynd!
Klámmyndir eru skemmtun en ekki námskeið í kynlífi. Konur eru í raunveruleikanum ekki eins og þær sem að leika í þessum myndum. Þú þarft ekki að glenna lappirnar á henni svakalega út. Það þarf nefnilega ekki að vera pláss fyrir heilt tökulið í klofinu á henni.

27. Láta konuna vinna alla vinnuna!
Að láta hana sitja ofan á er mjög gott. En ekki í marga klukkutíma. Skiptist á að gera gott við hvort annað, og breytið um stellingar.

28. Spyrja konuna EKKI á undan hvort að hún vilji stunda endaþarmsmök!
Ein af þessum slæmu! Ef að þig langar til að stunda endaþarmsmök spurðu hana þá fyrst. Það getur vel verið að hún segi já. Þú mátt ekki bara gera ráð fyrir að hún vilji það. Og að segja að þú hafir óvart villst í vitlaust gat, er bara út í hött að segja!

29. Taka einkamyndir!
Þegar þú spyrð: má ég taka nektarmyndir af þér? Heyrir hún þig segja: sem ég get sýnt vinum mínum eða setja þær á internetið. Láttu hana fá myndirnar og svo getið þið kíkt á þær saman.

30. Eru of hugmyndasnauðir!
Þessar sömu tvær stellingar geta orðið leiðinlegar. Reyndu eitthvað nýtt!

31. Eru oft tæknilegir!
Kama Sutra, tantrasex o.s.frv. Ef að hún vill stunda jóga hefði hún sennilega farið á námskeið.

32. Gefa konunni sogblett!
Ertu 12 ára gamall? Allir sem svara þessari spurningu neitandi hætta að gefa sogbletti á stundinni!

33. Tala "dirty" í rúminu!
Sumum líkar að láta tala "dirty" við sig í rúminu, öðrum líkar það ekki. Spurðu hana hvort að hún "fíli" það.

34. Gefa skipanir!
Það er hægt að gera á margan hátt. Hún er hvorki hundur né hermaður...

35. Halda að allt sé yfirstaðið þegar hann er búinn að "koma"!
Sýningunni er ekki lokið fyrr er allir eru fullnægðir. Það er ekkert verra en menn, sem halda að samræðinu sé lokið, bara af því að þeir eru fullnægðir.

36. Þrýsta öllu lofti út úr henni!
Mundu að það eru miklar líkur á því að þú sért mun þyngri en hún. Ef þú liggur lengi ofan á henni getur andlitsliturinn hennar orðið bláleitur.

37. Þakka fyrir sig eftir kynlíf!
Hún stundar kynlíf af því að henni langar til þess ekki til að þjónusta þig!
13. febrúar 2007 klukkan 22:02
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
13febrúar

Ekki er öll vitleysan eins

Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund: "Do not use on Children under 6 months old.". - Auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín fyrr en þau eru orðin 7 mánaða! Daahh!

Leiðbeiningar á Sears hárblásurum: "Do not use while sleeping" - Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á mér.

Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu: "Use like regular soap" - Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?

Á umbúðum af SWANN frystimat: "Serving suggestion: Defrost" - Mundu samt ... þetta er bara uppástunga.

Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð: "Fits one head." - Sérðu þetta ekki fyrir þér ... einhverja tvo vitleysinga ... með eina baðhettu...

Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur: "Do not turn upside down". - úpps OF seinn... þú tapaðir!!

Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer: "Product will be hot after heating" - óóóóó?? Kemur á óvart!

Á pakkningum af Rowenta straujárni: "Do not iron clothes on body." - En myndi það nú ekki spara mikinn tíma?

Á hóstameðali fyrir börn frá Boots: "Do not drive car or operate machinery." - Þannig að Gunni litli fær ekki að leika sér á jeppanum þegar hann kemur heim.

Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta: "Warning: may cause drowsiness." - Maður skyldi nú rétt vona það!

Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig: "Warning keep out of children." - Ókíííí ....... !!

Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt: "For indoor or outdoor use only." - En ekki hvar ... ???

Matarvinnsluvél frá Japan var merkt svona: "Not to be used for the other use." - Ok .. núna er ég orðinn mjög forvitinn!

Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning: contains nuts." - Jamm ... ég fer mjög varlega..

Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta: "Instructions: open packet, eat nuts." - Er það þannig sem það er gert?!! Óóó.. Asni get ég verið!

Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir: "Munið að þvo liti aðskilda". - Ehhh ... já ... áttu nokkuð skæri!?

Leiðbeinginar á ónefndri örbylgju popp tegund segir manni að "taka plastið af áður en sett er í örbylgju". - Málið er, að til að geta lesið leiðbeiningarnar verðuru að vera búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur .......

Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum stendur: "Notice, little boy not included". - Ohhhhhh ....... ég sem var farin að hlakka svo til að eignast vin!

Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur "new and improved shapes". - Ahaaa ... einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra útaf.

Lítill miði var festur á "Superman" búning. Á honum stóð: "WARNING: THIS CAPE WILL NOT MAKE YOU FLY". - Núúúú ... þá kaupi ég hann ekki!

Á flösku af linsu-hreinsi stendur "Remove lenses from eyes before cleaning". - Sérðu ekki fólk fyrir þér vera að spreyja hreinsiefni í augun ... duhh!!

Á keðjusögum stendur oft viðvörunin "Do NOT touch the rotating chain". -Er það ekki nú nokkuð ljóst .. haaa ....??

"Waterproof" maskarar ... á þeim stendur: "Washes off easily with water". - Hmmm .... ?

Á hliðinni á flösku af ónefndri rommtegund stendur: "OPEN BOTTLE BEFORE DRINKING". - Maður þarf nú að vera búinn að fá sér þokkalega mikið til að fatta það ekki!

Ég var að koma tölvunni minni fyrir á nýjum stað. Kveikti á henni, en gleymdi að tengja lyklaborðið. Ég fékk náttúrulega villuskilaboð: "301: Keyboard bad or missing. Hit the F1 key to continue." - .... þarf ég að segja meira!?

Þetta stóð aftan á sótthreinsandi hreinsiefni: "If you can not read English, do not use this product until someone explains this label to you." - Ehhhh ..... ?

13. febrúar 2007 klukkan 21:50
Elísa Rún Heimisdóttir
1 athugasemd
11febrúar

"Dude, where's my car" eða svona næstum því

Lenti í svolítið fyndnu atriði um daginn. Vorum á Smáratorgi þegar allt í einu greip okkur mikið hungur og skelltum við okkur því Ricky Chan. Jæja, þeir sem hafa séð myndina "Dude, where's my car" ættu að kannast við þetta. Við ákváðum að fá okkur tilboð þar sem þú getur valið 2 rétti fyrir 790 (eða eitthvað) og 3 rétti fyrir 890 (eða eitthvað álíka) jæja kínverska afgreiðslukonan setur hrísgrjón á disk og segir svo með afskaplega frekjulegum tón "og" alltaf á milli rétta. Þar sem ég fékk mér 2 rétti og Steini 3 rétti þá fengum við að heyra þetta "dásamlega" frekjulega "og" allt í allt 5 sinnum. Þegar við settumst spurði ég Steina hvaða bíómynd kæmi fyrst upp í huga hans, og jújú mikið rétt, sú mynd sem honum datt fyrst í hug var að sjálfsögðu "Dude, where's my car". Fannst eiginlega eins og við værum að leika í atriðinu þar sem þeir koma í "Drive throug-ið" á kínverska veitingastaðnum og eru að panta og alltaf kemur "and then".
11. febrúar 2007 klukkan 11:34
Elísa Rún Heimisdóttir
Engin athugasemd
05febrúar

Djammið

Jæja, við Steini skelltum okkur á djammið í gær... mjög gaman, en að sama skapi reyndist það ansi furðulegt.  Eftir að sonurinn var kominn í pössun skelltum við okkur til Ríkeyjar og Erlu og fengum okkur pínu í glas með þeim. Þegar líða tók á kvöldið fórum við niður í bæ og komum við á nokkrum stöðum, leist misvel á þá en enduðum á Dillon, stað sem ég hef nú annars ekki mikið álit á og ekki skánaði það í gærkvöldi. Steini og Ríkey voru niðri þar sem meira stuð var í gangi, en ég og Erla sátum uppi í rólegheitunum og spjölluðum og sötruðum bjór. Erum þarna bara í mestu rólegheitum þegar inn kemur hópur af karlmönnum sem greinilega voru að halda steggjapartý. Við pældum nú svosem ekkert í því fyrr en einn þeirra kemur og sest hjá okkur, NB óboðinn. Jæja, hann byrjar á því að afsaka sig á því að koma og spjalla við okkur, en við værum bara svo fallegar að hann gæti bara ekki gert annað, jæja eftir það tilkynnir hann okkur það að hann sé að steggja vin sinn og bendir okkur á hann. Mér fannst það afar furðulegt að þessi maður væri að fara að gifta sig, því aðra eins hryggðarmynd hef ég sjaldan séð. Steggurinn var sumsé draugfullur, slagaði veggja á milli og til að bæta gráu ofan á svart var hann afskaplega takmarkað myndarlegur. Jæja, vinurinn spyr okkur því næst hvort við ættum ekki svolítið dóp til að gefa steggnum, honum hefði alltaf langað svo til að prófa...WHAT!!! Það hlaut að sjálfsögðu að vera að við ættum dóp fyrst að við værum á Dillon... ég veit svosem ekki hvað gaf honum annars þessa fáránlegu hugmynd.  Ég tilkynnti vininum að þetta fyndist mér vera hrein móðgun og að hann gæti nú varla verið mikill vinur steggsins fyrst hann væri að reyna að redda honum eiturlyfjum. Því næst bað ég vininn um að fara, sem hann gerði ekki. Fyrst við áttum ekki dóp og sátum þarna tvær einar að spjalla saman komst hann að þeirri niðurstöðu að við værum þá alveg örugglega tilbúnar til að sofa hjá steggnum fyrir peninga. WHAT!!! Þá sögðum við vininum að hann væri djöfuls hálfviti og sögðum honum að hundskast í burtu. Sem hann loksins gerði. En steggurinn var greinilega tilbúinn til að fórna hjónabandinu því að hann tilkynnti okkur hátt og snjallt að hann ætti 30 mínútur eftir af frelsi. Hefur greinilega þurft að vera kominn heim til verðandi eiginkonu eftir hálftíma. Langaði geggjað til að spyrja stegginn um heimasímann hjá honum og hringja í frúna og segja henni hvað hún væri að fara út í. Þvílíkt RUGL!!!
Jæja fljótlega eftir þetta var mín búin að fá nóg af fíflum og fórum við Steini bara og fengum okkur Kebab og fórum svo heim.
Kvöldið var annars fínt fyrir utan þetta Dillon kjaftæði. Eitt er víst að þetta atvik varð ekki til þess að bæta álit mitt á djammmenningu Reykjavíkurborgar.

Takk fyrir mig.
05. febrúar 2007 klukkan 04:25
Elísa Rún Heimisdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...