"Dude, where's my car" eđa svona nćstum ţví
Lenti í svolítið fyndnu atriði um daginn. Vorum á Smáratorgi þegar allt í einu greip okkur mikið hungur og skelltum við okkur því Ricky Chan. Jæja, þeir sem hafa séð myndina "Dude, where's my car" ættu að kannast við þetta. Við ákváðum að fá okkur tilboð þar sem þú getur valið 2 rétti fyrir 790 (eða eitthvað) og 3 rétti fyrir 890 (eða eitthvað álíka) jæja kínverska afgreiðslukonan setur hrísgrjón á disk og segir svo með afskaplega frekjulegum tón "og" alltaf á milli rétta. Þar sem ég fékk mér 2 rétti og Steini 3 rétti þá fengum við að heyra þetta "dásamlega" frekjulega "og" allt í allt 5 sinnum. Þegar við settumst spurði ég Steina hvaða bíómynd kæmi fyrst upp í huga hans, og jújú mikið rétt, sú mynd sem honum datt fyrst í hug var að sjálfsögðu "Dude, where's my car". Fannst eiginlega eins og við værum að leika í atriðinu þar sem þeir koma í "Drive throug-ið" á kínverska veitingastaðnum og eru að panta og alltaf kemur "and then".
11. febrúar 2007 klukkan 11:34
Elísa Rún Heimisdóttir
Elísa Rún Heimisdóttir